Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Pólitískur Tittlingaskítur

Þetta er fyrir það firsta stórfurðuleg fyrirsögn, það var ekki héraðsdómari sem sló óþekkan nemanda heldur kennari sem seinna varð héraðsdómari.

Á þessu tíma máttu foreldrar flengja börn sín og það þótti ekki tiltökumál að kennari slæði einhvern utanundir. Í dag væri það hins vegar saknæmt.

Um það sníst líka málið, þegar Ástráður á að hafa slegið Svein var það ekki álitið athugavert eins og Sveinn segir sjálfur. Hvernig getur hann á sama tíma sagt að þetta sé ekki pólitísk árás.

Ég og flestir mínir skólafélaga fengum á einhverjum tíma líkamlega refsingu frá okkar kennurum, kanski slegnir með reglustiku á fingurgóma eðe eithvað álíka. Þetta þótti ekkert tiltökumál svo lengi sem ekki sá á okkur og ef við höfðum hagað okkur illa. Í dag er þetta ekki í lagi en gömlu kennararnir okkar eru samt engir glæpamenn. Voru reyndar flestir hinir mætustu menn sem vildu okkur bara það besta.

Til að taka af allan vafa um á hvaða öld ég var í skóla þá er ég 12 árum eldir en  Sveinn

Veröldin breitist og mannanna siðir með. En það er alveg út í hött að ætla að draga up hluti sem einhver gerði fyrir 40 árum  sem vour eðlilgir þá og telja það löst við þann sama mann í dag, svo fremi að viðkomandi hafi látið af umræddri háttsemi.

Ég þekki hvorugan mannin en að Sveinn haldi því fram að hér sé ekki um pólitískan illvilja að ræða er bara á góðri íslensku hreinasta helv. vitleysa.


mbl.is Sakar héraðsdómara um að hafa slegið sig sem barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta frétt?

Er verið að gera tilraun til að gera þennan mann að hetju?

Það er sorglegt fyrir aðstandendur hans að hann var drepinn. En er það virkilega eithvað til að státa sig af eða á nokkurn hátt merkilegt að hafa litað á sér hárið og klest lit framan í sig til að komast í þá aðstöðu að geta drepið aðra.

þessi maður er síður en svo merkilegri en aðrir sem hafa dáið og ég sé ekki fréttagildið í þessum upplýsingum.


mbl.is Dekkti húð og hár og komst til Afrín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þvílík Heimska

Vilja þessir vanvitar meina að það sé á allra vitorði að þeir geri sig að fíflum á þessum bar þannig að fólk geti skipulagt að koma og taka up rausið í þeim.

Þessir gemlingar grafa sig dýpra og dýpra í spillingarleðjuna í hvert skipti sem þeir opna munninn um þetta mál. Burt með þetta hyski af Alþingi og enga opinbera bitlinga handa neinu þeirra.


mbl.is Segja upptökurnar skipulagða aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sækja fyrirmyndir til Svíþjóðar varðandi byggingar.

Ég vona innilega að íslendingar ætli ekki að sækja fyrirmyndir til Svíþjóðar varðandi byggingu íbúðarhúsnæðis. Þar eru Svíar á allt öðru og lægra plani og geta að mínu mati ekki kennt Íslendingum mikið annað en léleg vinnubrögð.

Ég hef búið í Svíþjóð í 11 ár og búið í þremur húsum. Öll eiga það sameiginlegt að vera illa byggð og meira hugsað um hvernig ódýrast er að gera hlutina en ekki endilega notagildi og þægindi fyrir íbúana.

Sænsk byggingalist er ekki fyrir Íslenskar aðstæður.


mbl.is Fundaði með ráðherra húsnæðismála í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmenn Pírata ættu allir að segja af sér

Allir þingmenn Pírata ættu að segja af sér eftir atburði gærdagsins.

Þeir telja sig fullkomna og það eitt er hættulegt líðræðinu. Við hin vitum að sem betur fer er enginn fullkominn.

Þeir segjast fagna fjölmenningu og virða skoðanir annara. En bara ef hinir hafa sömu skoðun og þeir sjálfir. Ef einhver hefur aðra skoðun telja þeir, þann einstakling vera hættulegan og eru hræddir við að hlusta á það sem viðkomandi hefur að segja.

Líðræðið gengur einmit út á að fólk má hafa mismunandi skoðanir og segja sína skoðun. Þingmenn Pírata eru greinilega ekki nógu þroskaðir til að skilji þetta og ættu því að segja af sér þingmensku og fara aftur í sandkassana sína.

 

 


mbl.is Krefst svara frá forsætisnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með græningjann?

First Hr. samviska þjóðarinnar, Helgi Hrafn er farinn að sveifla refsivendi hinna vammlausu ætti hann kanski líka að ransaka auðlindaráðherra þeirra græningja, Guðmund Inga. Hann réð sér aðstoðarkonu, vitandi að hún hafði reynt að hlunnfara viðkvæma skjólstæðinga sína þ.e. henni var ekki treystandi og fannst það allt í lagi þar til það varð á allr vitorði.

þá var það allt í einu, sorry Sif ég verð að reka þig til að bjarga eiginn skinni þrátt fyrir að mér finnist ekkert að því sem þú gerðir.

Er þetta kanski allt í lagi af því hann er ekki Sjálfstæðis eða framsóknarmaður.

 


mbl.is „Langar ekki að svara þessum spurningum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjörspilltur Græningi

Allt í lagi að ráða afbrotakonu sem aðstoðarkonu bara ef enginn veit af því nema háttvirtur ráðherrann en sorry Sif ég verð að reka þig af því þetta varð opinbert.

Hvernig getur forsætisráðherra treyst þessum manni til að  vera ráðherra eftir að sína svona alvarlegann dómgreindarskort. Katrín Jakobsdóttir hefur fordæmt mun minni yifrsjónir en þessa þannig að henni er ekki stætt á öðru en reka Guðmund.


mbl.is Guðmundur Ingi lætur Sif fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir frumkvæðið Silja Dögg

Loksins jákvæðar fréttir frá alþingi.

Löngu tímabært að gera þetta algenga barnaníð saknæmt.


mbl.is Vilja stöðva frumvarp Silju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Vilhjálmur Baldursson

Höfundur

Vilhjálmur Baldursson
Vilhjálmur Baldursson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband