20.12.2016 | 09:58
Eru ekki allir börn
Eftir því sem ég best veit er engum börnum vísað úr landi í Svíþjóð.
Ef ég man törlurnar rétt þá eru um 75% þeirra fylgdarlausu flóttabarna "ensamkommande flyktingbarn" sem send eru í læknisskoðun til að staðfesta aldur, reynst yfir 18 ára aldri. Vela að merkja þetta eru þá ekki lengur fylgdarlaus flóttabörn heldur almennir hælisleitendur og þeim getur verið vísað úr landi og fá þá ekki lengur stuðning frá því opinbera.
Höfum þetta í huga við lestur greinarinnar. og líka að þónokkur þessara "fylgdarlausu flóttabarna" sem eru í eldri kantinum hafa einnig orðið upvís að því að nauðga sér yngri börnum í búðum þar sem þeir eru vistaðir. Og vel að merkja, þetta eru næstum eingöngu karlmenn og í þeirra uprunalandi eru þeir ekki flokkaðir sem börn komnir á þennan aldur.
![]() |
Selja sig fyrir mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2016 | 20:09
Af hverju eru íslenskir siðir síðri öðrum siðum
Íslendingar eiga ekki að hafa neina minnimáttarkend vegna sinna siða.
Ég vinn í Danmörku og þar þakka menn fyrir síðast eins og á íslandi.
Í minni vinnu ferðast ég um alla Evrópu og verð var við ýmsa siði sem mér finnst ákaflega dónalegir en ég læt mér það í léttu rúmi liggja þar sem ég veit að þetta eru þeirra siðir. Af hverju ættu íslendingar að breyta sínum venjum og siðum bara fyrir túrista.
Þar sem ég vinn fáum við kennslu í að virða siði þeirra þjóða sem við heimsækjum og ætlast er til að við virðum þá, eins eiga Íslendingar að geta reiknað með að túristar og aðrir gestir virði okkar venjur.
![]() |
Takk fyrir síðast hvað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2016 | 14:42
Eyrarsundsbrú
Allir bílstjórar og farþegar einkabíla fyrir utan börn í fylgd með foreldrum þurfa að sína gild skilríki með mynd þegar þeir fara yfir brúna til Svíþjóðar og þannig hefur það verið í meira en mánuð.
Áður en brúin kom var engin lest milli Kaupmannahafnar og Malmö, einungis ferjur, þannig að ekki er hægt að tala um styttingu á ferðatima með lest.
Í dag þurfa allir sem eru á leið til Svíþjóðar með lest að fara úr lestinni við Kastrup flugvöll og fara í gegnum skilríkja-eftirlit til að komast inn í lestina aftur. Þegar lestin kemur til Hyllie (fyrsta stop í Svíþjóð) kemur lögreglan og skoðar skilríki aftur að því loknu fer lestin áfram til Malmö central þar sem allir sem ætla lengra þurfa að fara úr lestinni og bíða eftir næstu lest til síns áfangastaðar. Allt þetta getur þítt 1,5 til 2ja tíma seinkun allt eftir því hvað þú ert heppinn.
![]() |
Vissirðu þetta um Eyrarsundsbrú? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vilhjálmur Baldursson
Tenglar
Mínir tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar