Athugið fyrst hvað aðrir eru að gera

Ef Íslendingar færa klukkuna aftur til að leiðrétta tímann ættu menn fyrst að athuga hvað aðrir eru að gera. Svíar eru að ræða í alvöru um að færa sína klukku á sumartíma og stoppa þar, semsagt hætta að breyta klukkunni vor og haust. Taka up sömu skekkjuna sem Íslendingar eru að ræða um að leiðrétta. 

Ef þetta verður niðurstaðan hjá Svíum og Íslendingar seinka sinni klukku verður timamunur milli Íslands og Svíþjóðar 3 tímar. Allt árið.

Víðar í Evrópu er rætt um að hætta með sumar / vetrar tíma en mér er ekki kunnugt um hve langt sú umræða er komin né hve víða.


mbl.is Leggja til að klukkan verði færð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Okkar klukka er röng um 1 klst. allt árið og rúmlega það. Það er ekki verið að leggja til að taka upp sumartíma, heldur rétta klukkuna af.

Sindri Karl Sigurðsson, 8.2.2018 kl. 19:43

2 Smámynd: Vilhjálmur Baldursson

Sindri Karl.

Það er akkúrat það sem ég segi, "færa klukkun aftur til að leiðrétta tímann" (hefði kanski átt að segja klukkuna)

Ég tala ekkert um að hugmyndin sé að taku up sumartíma, við höfum haft sumatíma í mörg ár. Ég er í sjálfu sér sammál því að leiðrétta tímann en málið er að aðrar þjóðir eru að hugsa um að taka upp sömu skekkju og við erum með, af hverju vilja þeir það.

Vilhjálmur Baldursson, 8.2.2018 kl. 19:58

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Ég er ekki alveg að fylgja þér hvað þú meinar með því að aðrar þjóðir séu að fylgja okkur. Ríkisklukka Íslands er um 1 klst og 15 mínutum betur á undan sinni sól. Ef Svíþjóð ætlar að taka upp Moskvutíma þá er það stórfrétt og að sama skapi þá væri það stórfrétt ef GMT myndi vera færður í hafið á milli Íslands og Færeyja.

Sindri Karl Sigurðsson, 8.2.2018 kl. 22:32

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sindri Karl.  Svo fer það eftir því við hvaða punkt er miðað, við Gerpi er skekkjan aðeins um 45 mín.

Benedikt V. Warén, 9.2.2018 kl. 01:31

5 Smámynd: Vilhjálmur Baldursson

Sindri Karl.

ég get ekki hjálpað þér ef þú skilur ekki um hvað er verið að tala.

Vilhjálmur Baldursson, 9.2.2018 kl. 04:56

6 Smámynd: Leifur Hákonarson

http://www.eileendonoghue.org/media/The-Report-of-the-Special-Commission-on-the-Commonwealth%E2%80%99s-Time-Zone.pdf

Leifur Hákonarson, 9.2.2018 kl. 10:30

7 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Það er eitt að afnema sumar og vetrartímahring en það sem ég er að benda á er að okkar klukka er röng hún getur ekki verið á sama tíma og GMT. og já Benedikt, þetta eru um 45 mínútur hjá mér en síðan bætast við nokkrar gráður til viðbótar til hins helmings landsins, minnir að Reykjavík sé á 24°08´og Gerpir á 13°30´. Það má því segja að klukkan í dag sé réttari hjá mér en í Reykjavík, þó röng sé.

Sindri Karl Sigurðsson, 9.2.2018 kl. 11:44

8 Smámynd: Vilhjálmur Baldursson

það er öllum ljóst að klukkan á íslandi er vitlaus, það er búinn að vera sumartimi (daylight saving time) á íslandi síðan ég var barn. Eitt haustið var klukkunni ekki seinkað yfir á vetrartíma og þannig er hún búin að vera of fljót síðan þá.  

Ég spyr bara og lagði til að nefndin athugaði: Afhverju eru Svíar að hugsa um að fara yfir á sumartima í vor en seinka klukkunni svo ekki í haust. Semsagt vera á sumartima áfram og þar með, með of fljóta klukku. Þetta er ekkert sem er ákveðið en búin að vera þó nokkur umræða um þetta síðustu vikur hér í Svíþjóð.

Vilhjálmur Baldursson, 9.2.2018 kl. 12:30

9 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Tja... Þeir eru samt með rétta klukku sjáðu til. Þeirra klukka er á þeirra tímabelti, okkar er á röngu tímabelti, GMT. Þetta kemur sumar og vetrartíma ekkert við.

Sindri Karl Sigurðsson, 9.2.2018 kl. 22:17

10 Smámynd: Vilhjálmur Baldursson

Sindri Karl

þú virðist staðráðinn í að mistúlka allt sem aðrir hafa að segja. Þar sem við búum við málfrelsi er það líka þinn réttur.

Vilhjálmur Baldursson, 11.2.2018 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vilhjálmur Baldursson

Höfundur

Vilhjálmur Baldursson
Vilhjálmur Baldursson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband