Virðið bara réttindi allra.

Þvílíkur sleikjuháttur.

kvörtunum frá almenningi er ekki svarað en af því danskur þingmaður sem var með yfirgang og vildi sérmeðferð út á titilinn sinn kvartar, verður guðjón miður sín og finnst málið alvarlegt.

Guðjón Helga­son, reyndu bara að þjálfa þitt starfsfólk í mannasiðum og sjáðu til að ALLIR njóti sjálfsagðra mannréttinda í þessari svokölluðu öryggisleit. Ekki bara þingmenn og sjálfkipaðir fyrirmenn. Titlar gefa mönnum nefnilega ekki rétt á virðingu, virðingu þurfa menn að ávinna sér og það á líka við þína starfsmenn.

 


mbl.is Isavia lítur málið alvarlegum augum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við hverju bíst maðurinn

Þessi maður ætti ekki að vera hissa á meðferðinni. Hann sem þingmaður í Danmörku er meðábyrgur fyrir þessu öryggisæði á flugvöllum, amk í Danmörku og þar dugar heldur ekki að segja þessum svokölluðu öryggisvörðum hvað þeir eiga að gera og hvernig. 

Um leið og þessi maður hefur tryggt að íslendingar þurfi ekki að þola yfirgang og dónaskap á dönskum flugvöllum getur hann kvartað yfir íslenskum svokölluðum öryggisvörðum. þangað til verður hann bara að sætta sig við yfirgang þessarar "öryggiselítu" eins og aðrir 

Hann verður líka að gera sér grein fyrir því að þó hann sé danskur þingmaður og fulltrúi í Norðurlandaráði á hann engann rétt á neinni sérmeðferð í þessari svokölluðu öryggisleit.


mbl.is Þingmaður miður sín eftir líkamsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Vilhjálmur Baldursson

Höfundur

Vilhjálmur Baldursson
Vilhjálmur Baldursson
Apríl 2018
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband